|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Bláfjallakeppnin 2008
miðvikudagur, maí 7
Árni M. Jónsson sigraði báða flokka í Bláfjallakeppninni í kvöld á langbesta tímanum eða 24:32.
Gunnlaugur Jónasson kom í mark annar á tímanum 27:37 og Óskar Örn þriðji 28:46.

Með þyngdarforgjöf hoppaði Gísli Ólafsson úr 7. sæti upp í það þriðja, Óskar Örn úr þriðja í annað sæti en Árni Már hélt efsta sæti.

Í kvennaflokki voru mættar tvær konur. Ásdís Kristjánsdóttir sigraði á tímanum 38:43 en Helga Árnadóttir varð önnur á tímanum 39:21. Með þyngdarforgjöf snérust þau úrslit við og Helga sigraði.


Við verðlaunaafhendingu fyrr í kvöld fékk Brad Evans verðlaun fyrir þriðja sætið en Óskar Örn var hinsvegar með betri tíma. Það sem olli þessu var það að Óskar mætti 15 sek of seint á ráslínu. Með réttu ætti það að vera hans sök en honum til varnar var ræst með 30 sek millibili í stað hinnar hefðbundnu mínútu og það ef til vill ekki nægjanlega vel upplýst á ráslínu.
Þar sem þessi keppni skal ekki tekin of hátíðlega er Óskar skráður í þriðja sæti á þeim tíma sem hann raunverulega hjólaði leiðina.

Þökkum öllum fyrir góða keppni og þá aðstoð sem við fengum, sérstaklega Daníel og Afreksvörum ehf, sem gáfu efstu mönnum með þyngdarforgjöf vegleg verðlaun.

Heildarúrslit

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter