 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Bláfjallakeppnin 2008 |
laugardagur, maí 3 |
 |
 |
 |
Hin árlega tímakeppni upp að Bláfjöllum verður haldin næstkomandi miðvikudag eða 7. maí kl 19:00.
Keppnin hefst rétt ofan við Bláfjallaafleggjara af Suðurlandsvegi og er hjólað að malbiksenda eða 12,7 km og 350 m hækkun.
Keppt verður í opnum flokki karla og kvenna. Allir keppendur verða viktaðir ásamt hjóli og verður einnig keppt í sérstökum flokki að frádregni þyngdarforgjöf.
ATH Í ár verður ræst með 30 sec millibili. ATH Þeir sem forskrá sig eru öruggari með betri rásröð en keppnisnefnd mun reyna að raða keppendum eftir getu.
Forskráning fer fram með tölvupósti til hjolamenn@internet.is. Keppnisgjöld eru kr. 1000 ef keppendur forskrá sig á fyrir kl. 12 á þriðjudag, en ella kr. 1500. Skráningu skal lokið í síðasta lagi 30 mínútum fyrir keppni. Keppendur eru hvattir til að skrá sig í tíma en það er mikið hagræði fyrir keppnisnefnd. Reikningur er 101-26-705815 og kt. 580105-0840.
Yfirverkfræðingur Hjólamanna, hinn virti Haukur Eggertsson hefur smíðað þingdarforgjöfina. Í fyrra var hún örlýtið vanmetin og verður hún löguð eitthvað til. Gert er ráð fyrir að keppendur hjóli að meðaltali á 275 W og upp í 290 W eftir þyngd, en ekki verður leiðrétt fyrir núningsáhrifum götu. Hins vegarverður áhrifum þyngdarafls vegna brekku umbreytt í meiri hraða og þvískemmri tíma. Miðað við logn eða hliðarvind mun hvert kg gefa 7 sekúndur nálægt 70 kg og 9 sekúndur nálagt 120 kg. Þyngd er miðuð við hjólreiðamann með hjóli, en 120 kg maður munu þá hafa ca. sex og hálfa mínútu í forgjöfm.v. 70 kg (mann og hjól).
Þetta er í þriðja sinn sem þessi keppni er haldin með þessum þyngdarútreikningum og skulu þeir ekki teknir of hátíðlega. Vilji menn fræðast frekar um útreikninga skulu þeir hafa samband við Hauk Eggertsson,haukureg@strik.is
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |