
Skráning í Bláalónsþrautina.
Keppnisgjald er 1500 kr á mann. Netskráning lýkur 5 júní. Eftir 5 júní verður einungis hægt að skrá sig á keppnisdag og hækkar gjaldið í 2500 kr á mann.
Það er til mikillar hagræðingar fyrir keppnisstjórn að keppendur skrái sig sem fyrst til keppni!!! Bláalónsþrautin á fjallahjóli er fyrst og fremst almenningshjólreiðamót og tilvalið fyrir fólk sem er að byrja sinn hjólreiðaferil að taka þátt!
Alltaf vantar gott fólk til að aðstoða við framkvæmd mótsins, ef einhver sér sér fært að hjálpa til má sá hinn sami hafa samband við Albert aj@hi.is.
|