Hjólamenn halda 2. bikar í fjallahjólreiðum við Guðmundarlund í Heiðmörk miðvikudaginn 28 maí 2008 kl. 19:00. Keppt er í flokkunum 13-14, 15-16, 17-18, Opinn flokkur, H-30 og H-40, allir flokkar í báðum kynjum svo framarlega sem þátttaka verður nægjanleg. Skráningargjald er krónur 1600 við forskráningu en 2500 á staðnum. Við biðjum menn að senda einnig tölvupóst á hjolamenn@internet.is þegar þeir hafa skráð sig. Það er mjög mikilvægt til að auka hagræði við keppnisskipulag að allir skrái sig fyrir miðnætti á sunnudag. Þeim tilmælum er sérstaklega beint til þeirra sem keppa í aldursflokkum. Brautarskoðun verður á Mánudag kl 19:00, Brautin verður þó merkt eitthvað fyrir þann tíma þannig að menn ættu að geta ratað leiðina ef mánudagskvöld hentar þeim ekki.
Keppnin fer fram á hring sem myndaður er af blöndu af skógarstígum og moldarvegum.
Til að komast að Guðmundarlundi farið frá Breiðholtsbraut eins og eigi að fara Þriggjavatnaleið en beygt til vinstri á þriðja hringtorgi, inn á götuna Þingmannaleið, einnig merkt "Heimsendi". Síðan er farið beint gegnum eitt hringtorg en farið til hægri á því næsta, merkt "TIPPUR"og "MOLD". Fljótlega sést í trén sem mynda Guðmundarlund.
Nánara kort af leiðinni:
smellið til að stækka
|