 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Sumardagurinn fyrsti |
sunnudagur, apríl 20 |
 |
 |
 |
Hjólamönnum barst boð um sameiginlega æfingu á sumardaginn fyrsta og þakka ég kærlega fyrir það.
Sumardagurinn fyrsti er á næsta fimmtudag, Hjólreiðafélag Reykjavíkur ætlar að hafa veglega æfingu af því tilefni, hjóla í Nesbúð á Nesjavöllum. Hjóla Mosfellsheiðina og Grafninginn og enda í hádegismat í Nesbúðinni. Þeir sem vilja meira geta hjólað í bæinn tilbaka sömu leið, ég geri ekki ráð fyrir því að Nesjavallaleiðin verði ekki fær. Þau sem eru búinn að fá nóg láta sækja sig í Nesbúð. Svo er náttúrulega hægt að hjóla með upp á Mosfellsheiði og snúa þar við ef ekki er tími fyrir langan túr. Allir eru á eiginn ábyrgð.
Við leggjum af stað frá Nauthólsvík kl 9:30, komum við í Húsasmiðjunni í Grafarholti, gerum ráð fyrir því að vera þar kl 10. Hópurinn hjólar rólega í einum hóp að Gljúfrasteini en þá verður skipt upp í hópa eftir hraða, allir eiga að finna hóp við sitt hæfi.Í tilefni sumarkomu vil ég bjóða Hjólamenn, Hjólakonur, Þríþrautargarpa, IFHK og allt hjólreiðafólk yfirleitt með okkur í þennan túr í tilefni sumarkomu. Það væri glæsileg byrjun á sumri ef stór hópur hjólreiðafólks legði á heiðina!
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |