
Aðalfundur Hjólreiðanefndar ÍSÍ verður haldinn föstudaginn 16. nóvember n.k. í stóra sal í húsnæði ÍSÍ í Laugardal og hefst kl. 18. Vegna fyrirætlunar Hjólreiðanefndar að sækja um aðild að Alþjóðahjólreiðasambandinu, þarf að afla sér lýðræðislegs umboðs. Því verður í fyrsta skipti kjörið í nefndina, en í henni eiga sæti þrír nefndarmenn. Framboðsfrestur er þar til kjör hefst á föstudaginn.
Ræða formanns
Þá verða almennar umræður um keppnishjólreiðar á Íslandi.
Meðal efnis sem verður reifað er: Framkvæmdastjóri Hjól, reynsla og hvort að einhver hafi áhuga á starfinu fyrir næsta tímabil Keppnisdagskráin, fjöldi keppna, álag á keppendur. Íslandsmeistaramót í júlí. Bikarmót vs. prótúr. Embætti fjölmiðlafulltrúa og styrktarsafnara Hjól sem væri á prósentum Íslandshjólreiðarnar, hversu margir dagar, fara út á land Tímatökukeppnir, þróun og lengd. Lög og reglur Sérsamband vs. hjólreiðanefnd Lagabreytingar og önnur mál.
Eftir umræður fer verðlaunaafhending fram. Tilkynnt verður um val á hjólreiðamanni og hjólreiðakonu ársins.
Kjör nýrrar hjólreiðanefndar.
Veitingar verða í boði hjólreiðanefndar.
Haukur Eggertsson
|