|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Tjarnarspretturinn 2007
föstudagur, september 21
Þá er komið að því að mest áberandi keppni sumarsins á götuhjólum verður haldin næstkomandi laugardag klukkan 14:30.
Svipað fyrirkomulag verður á keppninni núna og áður.Skráning hefst klukkan 13:30 í andyri Ráðhúss Reykjavíkurborgar og er skráningargjald í keppnina ókeypis.
Ræst verður við andyri ráðhússins klukkan 14:30 og verður keppt í karla og kvennaflokki auk þess að sá sem fyrstur kemur í mark eftir 15 hringi verður krýndur Tjarnarsprettsmeistarinn 2007
Fyrirkomulag keppninnar verður þannig að hjólaðir verða 15 hringir og allir ræsa í einum hóp. Útsláttarfyrirkomulag verður þannig að ef fyrsti maður hringar keppanda þá verður sá keppandi úr eftir að hann hefur klárað þann hring sem hann er staddur í. (mikilvægt er að klára seinasta hringinn sinn til þess að fá tímann skráðann og að missa ekki sæti sitt til aftari manns sem klárar sama hring)
Ef kona hringar karlmann eða öfugt er sá keppandi úr sem hringaður er þar sem allir eru jafnir í brautinni.
Sjónvarpið verður á staðnum og engu verður til sparað að gera þessa keppni sem glæsilegasta og skemmtilegasta.Eftir keppnina mun Gísli Marteinn afhenda verðlaun og keppendur munu hafa hjólin sín inni í ráðhúsinu til sýnis fyrir áhorfendur.Í lokin verður svo keppni á Virtual Trainerum milli sigurvegara keppninnar og þekktrar persónu sem mun taka einnar mín. keppni í andyri ráðhússins.
Allar fyrirspurnir er hægt að fá svar við í síma 856-1573 Vilberg

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter