|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 TJARNARSPRETTURINN 2007 - ÚRSLIT
sunnudagur, september 23

Það er óhætt að segja að umgjörð Tjarnarsprettsins 2007 hafi verið með glæsilegasta móti. Einnig var atburðurinn vel kynntur í fjölmiðlum í tengslum við samgönguviku Reykjavíkurborgar. Vonandi er þetta forsmekkurinn af því sem koma skal í keppnishjólreiðum á Íslandi. Keppnisstjórn Tjarnarsprettsins er óskað til hamingju með vel heppnaða keppni og fá einnig þakkir fyrir óeigingjarnt starf.


16 keppendur skráðu sig til leiks og var sérstaklega ánægjulegt að kvennaflokkur var fullskipaður. Keppendur voru varla búnir að smella sig í pedalana þegar allt var gefið í botn á fyrsta hring. Greinilegt var að það átti strax að hrista upp í hópnum enda lítið svigrúm fyrir annað í jafn stuttri keppni. Eftir nokkra hringi mynduðust 3 hópar fremstu manna og hélst sú staða nær óbreytt út keppnina. Hafsteinn og Árni voru í fremsta hópi, þar á eftir komu Brad og Kári og í 3. hópi voru Sigurgeir, Elfar og Hlöðver. Árni var greinilega harðákveðinn að sleppa Hafsteini ekki of langt í burtu og þegar komið var yfir marklínuna munaði ekki nema 5 sekúndum á köppunum. Þar með var Hafsteinn orðinn Tjarnarsprettmeistarinn 3. árið í röð og vann farandbikarinn sér til eignar. Er honum hér með færðar hamingjuóskir með sigurinn og glæsilegt keppnistímabil. Kári og Brad börðust um 3. sætið og það var ekki fyrr en á síðasta 1 1/2 hringnum sem Kára tókst að mynda bil á milli þeirra tveggja og tók þar með bronsið.

Lára Bryndís Eggertsdóttir sigraði með nokkrum yfirburðum kvennaflokkinn og komst heilum hring meira en aðrar konur.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter