|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Landskeppni Ísland-Færeyjar 7. 8. og 9. september
sunnudagur, september 2

Um næstu helgi verður efnt til landskeppni við Færeyinga. Hjólaðar verða þrjár dagleiðir, við Marel í Garðabæjarhrauni, í Hvalfirði og á Krísuvíkurleið. Keppt verður í tveim flokkum í báðum kynjum. Opnum flokki sem allir þátttakendur verða með í og flokki 18 ára og yngri. Níu Færeyingar hafa skráð sig til leiks og er búist við góðri þátttöku Íslendinga.

Helstu viðburðir helgarinnar verða sem hér segir:

Föstudagur kl. 19.30: Garðabær við Marel, hópstart, 34 hringir í karlaflokki ca. 40,8 km. Kvennaflokkur hjólar 24 hringi, ca. 28,8 km.

Laugardagur kl. 10.00: Hvalfjörður, hópstart.Hjólað verður frá Félagsgarði í Kjós 17,5 km inn Hvalfjörðinn. Þessi leggur er farinn fram og til baka, tvisvar sinnum, ca. 70 km í karlaflokki. Kvennaflokkur hjólar 1 bunu fram og til baka, ca. 35 km.

Sunnudagur kl. 12.00: Tímakeppni á Krísuvíkurleið. Byrjað við Bláfjallaafleggjara og hjólaðar tvær “pulsur” niður og upp malbikið á Krísuvíkurleið ca. 30 km í karlaflokki. Kvennaflokkur hjólar eina “pulsu” ca. 15 km. Farið verður í Bláalónið á eftir.

Sunnudagur kl. 20.00: Pizza- eða grillveisla.Þátttökugjald 2000 krónur fyrir hverja dagleið en 4000 ef greitt er samtímis fyrir allt mótið. Hægt er að greiða inn á reikning Hjólamanna nr. 101 26 705815, kt. 580105-0840 og senda staðfestingu á netfangið: hjolamenn@internet.is fyrir kl. 12 á föstudag.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter