 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Kambakeppnin |
föstudagur, september 21 |
 |
 |
 |
Hjólreiðafélag Reykjavíkur heldur hina árlegu Kambakeppni í götuhjólreiðum ITT sunnudaginn 23. september 2007. Keppnin hefst klukkan 11:00. Hjólað verður frá hringtorginu við Hveragerði og að afleggjaranum þar sem Slysavarnarskýlið var upp á miðri Hellisheiði. Þetta er ca. 8,9 km og 320 m hækkun. Hjólreiðamenn hafa haft það fyrir sið að keppa upp Kambana í rúm tíu ár. Metið á þessari leið, frá hringtorgi við Hveragerði, upp að sæluhúsinu á Hellisheiði, er 18:29’. Keppt er í flokkum 18 ára og yngri Opnum flokki 19-39 og Garpar (40+), kvenna og karlaflokki. Keppnisgjald er 1500 krónur, Keppendur greiða keppnisgjaldið inn á reikning HFR. Kennitala Hjólreiðafélags Reykjavíkur: 430194-2089Reikningsnúmer: 132-26-2089 (Landsbankinn í Smáralind)Vinsamlega sendið kvittun og skráningu á hfr@vortex.is .Skoðun öryggisbúnaðar lýkur hálftíma fyrir keppni. Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppnum HFR. Allir keppendur skulu nota hjálm.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |