|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 LANDSMÓT UMFÍ
mánudagur, júlí 2




Hjólamenn halda 2. bikar í fjallahjólreiðum við Guðmundarlund í Heiðmörk sunnudaginn 8. júlí 2007 kl. 10.30. Keppt er í flokkunum 13-14, 15-16, 17-18, Opinn flokkur, H-30 og H-40, allir flokkar í báðum kynjum svo framarlega sem þátttaka verður nægjanleg. Keppnin er einnig hluti af Landsmóti Ungmennafélags Íslands. Fer skráning fram á heimasíðu Landsmótsins á slóðinni: https://skraning.felix.is/pages/landsmot-einstaklingar/ Skráningargjald er krónur 1600 við forskráningu en 2500 á staðnum. Við biðjum menn að senda einnig tölvupóst á gj@hive.is þegar þeir hafa skráð sig.


Vekjum einnig athygli á heimasíðu Landsmótsins: http://landsmot.kopavogur.is/


Keppnisstjóri verður Bjarki Bjarnason, dómari Haukur Eggertsson, aðstoðarmaður Gunnlaugur Jónasson sem jafnframt er sérgreinarstjóri UMSK.




Keppnin fer fram á hring sem myndaður er af blöndu af skógarstígum og moldarvegum. Brautarskoðun verður næsta fimmtudag kl. 19.00 við Guðmundarlund.




Til að komast að Guðmundarlundi farið frá Breiðholtsbraut eins og eigi að fara Þriggjavatnaleið en beygt til vinstri á þriðja hringtorgi, inn á götuna Þingmannaleið, einnig merkt "Heimsendi". Síðan er farið beint gegnum eitt hringtorg en farið til hægri á því næsta, merkt "TIPPUR"og "MOLD". Fljótlega sést í trén sem mynda Guðmundarlund.


Nánara kort af leiðinni:

smellið til að stækka







 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter