Hafsteinn Ægir Geirsson HFR sigraði Landsmót UMFÍ sem jafnframt var 2. bikar á fjallahjólum með miklum yfirburðum. Að þessu sinni var enginn keppandi í kvennaflokki, en aftur á móti voru 4 vaskir sveinar mættir til leiks í flokknum 50 ára og eldri en það mun vera í fyrsta sinn sem - lögleg - keppni fer fram í þeim flokk hérlendis, eftir því sem undirritaður kemst næst. Þennan flokk sigraði Hartmann Bragason glæsilega. Flokkur 40-49 ára var þéttskipaður að venju en þar sigraði Frosti Sigurjónsson með nokkrum yfirburðum.
Keppni fór fram í Guðmundarlundi í Kópavogi á braut sem var 3,9 km löng og fóru fyrstu menn 8 hringi í skóginum og umhverfi hans. Það sem vakti eftirtekt var hve mikla yfirburði Hafsteinn hafði yfir keppinauta sína. Það var glæsilegt að fylgjast með hvað það virtist auðvelt fyrir hann að fara hring eftir hring á mun betri tíma en þeir. Það er eins og munurinn á honum og öðrum sé að verða enn meiri en verið hefur, eins og hann hafi ekkert fyrir því að sigla frá keppinautumum og taki því svo bara með ró, en bilið bara eykst jafnt og þétt.
Yngri flokkarnir voru þunnskipaðir, einn keppandi í hverjum, sem skiluðu sínu með glæsibrag. Það er greinilega tímabært að við hjólreiðamenn förum að huga aftur að barna og unglingastarfi því það er einmitt úr yngri flokkum sem hjólreiðamenn framtíðarinnar koma. Þetta er gömul vísa en þó tímabært að kveða hana einu sinni enn...
Úrslit
1. Hafsteinn Ægir Geirsson 1:24:24 8 hringir
2. Davíð Þór Sigurðsson 1:29:47 8 hringir
3. Árni M. Jónsson 1:30:04 8 hringir
4. Hlynur Þorsteinsson 1:25:04 7 hringir
5. Burkni Helgason 1:26:18 7 hringir
6. Frosti Sigurjónsson 1:29:21 7 hringir
7. Einar M. Jóhannsson 1:30:24 7 hringir
8. Gísli Ólafsson 1:36:39 7 hringir
9. Jóhann Björgvinsson 1:29:46 5 hringir
Jónas G. Rögnvaldsson hætti
9-10 ára
1. Sigfinnur Böðvarsson 20:20
13.-14. ára
1. Jakob Ýmir Einarsson 18:28
50 ára og eldri
1. Hartmann Bragason 14:58
2. Hilmar J. Magnús 15:25
3. Björn H Magnússon 18:17
4. Gísli Óskarsson 20:21