
5. og síðasta legg Statoil Kring Foroyjar var startað frá Tjörnuvík nyrst á Straumey kl. 14 á sunnudaginn. Veður í Tjörnuvík var þokkalegt með strekkings vind, rigning í grennd og frekar kalt. Eftir því sem hjólað var suður eftir Straumey átti veðrið eftir batna og í Þórshöfn þar sem keppnin endaði síðar um daginn var hið besta veður.
5. dagleið keppninnnar var um 109 km löng og frekar flöt miðað við aðrar dagleiðir þó að klifraðir væru tæpir 1500 metrar. Tvö stærstu klifrin voru upp á Oyggjarveg og upp frá Gömlu rætt rétt áður en komið var inn í Þórshöfn þar sem hjólaðir voru 4 hringir á vegum sem voru lokaðir fyrir umferð.
Lítið gerðist fyrstu 15 km. Það var ekki fyrr en við brúnna yfir á Austurey þar sem fylgdarbíllinn loks vék að keppnin hófst fyrir alvöru. Fyrstu kílómetranir voru nokkuð fjörlegir eins og við mátti búast og var keyrt á hröðu tempói. Danirnir og Færeyingar reyndu hvað þeir gátu til að "breika" með það fyrir augum að þreyta Haffa og Dabba. Sigurgeir og Hlöðver lögðu sitt lóð á vogaskálina með því að loka nokkrum breikum. Þegar nálgaðist Saksun byrjaði Sigurgeir að dragast aftur úr. Í snúningnum í Saksun fór svo keðjan upp fyrir að framan svo að hann missti endanlega af fremsta hóp. Eins og í fyrri dagleiðum kom fljótt í ljós að Haffi, Dabbi, Torkil, Elí, Gunnar Dahl, Níels Jakob og Níels Bay voru í nokkrum sérflokki og hjóluðu þeir meira og minna saman þar til í brekkunni upp frá Gömu rætt að Haffi og Torkil slitu sig frá hópnum. Fór það svo að Torkil kom sjónarmun á undan Haffa í mark á tímanum 03:17:06. Daninn Niels Bay kom þriðji í mark á 03:18:03. Dabbi kom svo 4. mark 11 sekúndum þar á eftir.
Hafsteinn Ægir Geirsson úr HFR vann heildartímakeppnina á tímanum 09.44.03. Í 2. sæti var Torkil Veyhe úr TSF á 09.45.42 og í þriðja sæti var Davíð Þór Sigurðsson úr HFR á tímanum 09.52.41. Sigurgeir Agnarsson úr Hjólamönnum endaði í 10. sæti í tímanum 11.04.07. Eins og réttilega var bent í færeyskum fjölmiðlum var það frábær frammistaða Hafsteins í báðum tímakeppnunum sem tryggði honum sigurinn. Torkil Veyhe sem er einungis 17 ára er mikið efni sem verður spennandi að fylgjast með. Davíð Þór Sigurðsson hjólaði einnig mjög vel allar dagleiðirnar og uppskar verðskuldað 3. sætið.
Allt í allt voru þetta frábærir dagar í Færeyjum og vel að öllu staðið hjá frændum okkar. Vil ég sérstaklega þakka hinum íslensku keppendunum fyrir góða viðkynningu og drengilega keppni.
|