 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Íslandshjólreiðarnar dagur 1 |
fimmtudagur, júní 21 |
 |
 |
 |
Fyrsta dagleiðin í Hjólað um Ísland með Landsvirkjun fór fram ásumarsólstöðum eða fimmtudagskvöldið 21. júní. Keppnin fór fram íNauthólsvík og var svokölluð tímataka þar sem hver keppandi er ræstur meðmínútu millibili. Veglengdin sem hjóluð var er einungis 1,6 km þannig aðkeppendur máttu gefa allt sem þeir áttu í rúmar tvær mínútur.Keppnin var merkileg fyrir það að í fyrsta skipti í Hjólað um Ísland varkvennaflokkur en 4 sprækur stúlkur tóku að þessu sinni þátt, en karlar hafaverið töluvert meira áberandi í hjólreiðaíþróttinni hingað til.Í karlaflokki sigraði Hafsteinn Ægir Geirsson á 2 mínútum og 5 sekúndum.
Hafsteinn er margfaldur Íslandsmeistari og sigurvegari frá því í fyrra oghóf því keppni í gulu treyjunni, sem hann virðist ekki hafa nokkurn hug á aðláta af hendi. Annar á eftir Hafsteini var Anton Örn Elfarsson hálfri 5.sekúndu á eftir Hafsteini og þriðji var Kári Brynjólfsson á 2 mínútum og 10sekúndum.
Í kvennaflokki sigraði Bryndís Þorsteinsdóttir á 2 mínútum og 49 sekúndum ogmun hún því skrýðast gulu kvennatreyjunni í Hvalfirði á föstudagskvöldið. Íöðru sæti var Elín Edda Angantýsdóttir og þriðja var Ólöf Rut Stefánsdóttir.
2. dagleiðin fer fram í Hvalfirði á föstudagskvöldið, en þá verða hjólaðir64 km frá Félagsgarði í Kjós inn Hvalfjörð og út að Ferstiklu og sömu leiðtil baka. Á laugardag verður hjóluð 80 km leið frá virkjun Landsvirkjunarvið Steingrímsstöð og keppninni líkur við Ljósafossvirkjun á sunnudag hvaðanhjólaðir verða 20 km í tímatöku. Skoða myndir Skoða úrslit í karlaflokki Skoða úrslit í kvennaflokki
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |