|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Bláalónsþrautin 2007
mánudagur, júní 11


Bláalónsþrautin fór fram við kjöraðstæður sl. sunnudag. Metþáttaka var að þessu sinni en 160 keppendur voru skráðir til leiks. Öll umgjörð keppninnar var með miklum sóma og er Hjólreiðafélagi Reykjavíkur hér með færðar bestu þakkir fyrir glæsilega framkvæmd.




Hafsteinn Ægir Geirsson sigraði í 60 km vegalengdinni á tímanum 01:46:55. Í 2. sæti lenti Árni Már Jónsson og í 3. sæti var Davíð Þór Sigurðsson. Í kvennaflokki sigraði Bryndís Þorsteinsdóttir á tímanum 02:35:30 sem verður að teljast töluvert afrek miðað við ungan aldur.




Gengi Hjólamanna var nokkuð misjafnt. Brad R. Evans stóð sig glæsilega og hafnaði í 5. sæti og tók jafnframt gull í H30 flokknum. Nokkra athygli vakti að fákur hans var cyclocross hjól og er spurning hvort að fleiri feti í fótspor hans að ári liðnu. Gunnlaugur Jónasson lenti í því óhappi snemma í keppninni að detta illa og viðbeinsbrotnaði og neyddist þar af leiðand til að draga sig í hlé. Sigurgeir Agnarsson hjólaði lengi vel í hópi með Brad og Gísla Ólafssyni en sprengdi framdekk og datt við það nokkuð aftur úr. Hann vann sig þó aftur upp af nokkru harðfylgi og endaði í 9. sæti. Hjólamennirnir Daníel Smári Guðmdundsson og Guðni Páll Daníelsson stóðu sig einnig með prýði og enduðu í 23. og 24. sæti.




Frekari úrslit má skoða hér: http://hfr.is. Einnig má skoða myndir frá þrautinni á myndasíðu Hjólamanna: http://www.flickr.com/photos/hjolamenn/

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter