|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Lokadagurinn á Jótlandi
þriðjudagur, maí 29
Hafsteinn varð í 14. sæti í B-flokki og Gunnlaugur í 18 í H-40 á síðasta keppnisdegi í Hammel á mánudag. Brad keppti í C-flokki, var enn slappur eftir flensu og lauk keppni aftan við aðalhópinn.
Hafsteinn missti af 10 manna hóp sem stakk af og kom inn 4 í næsta hóp. Gunnlaugur valdi að keppa aftur í H-40. Var vel þreyttur eftir 80 km sem hann hjólaði einn daginn á undan og kom inn nokkuð sáttur í 18. sæti. En meistarinn Bogi stakk af fyrir síðustu brekkuna og hjólaði einn síðustu 6 km og kom í mark í 3. sæti á eftir tveim sem höfðu stungið af fyrr. Gunnar Dahl sem virðist eiga í smá erfiðleikum með formið um þessar mundir, missti af hópnum í B-flokki. Færeysku unglingarnir Torkjel og Sigmund lentu í miðjum hóp í sínum flokkum. Að þessu sinni var góð brekka í brautinni sem var hjóluð nokkrum sinnum. En Hafsteinn lenti í því að vera aðeins of aftarlega þegar brekkan byrjaði á fyrsta hring og þó hann hjólaði sig næstum að fremstu mönnum upp brekkuna slapp 10 manna hópurinn þar frá aðalhópnum án þess að hann væri með.

Það virðist vera mál málanna þarna að komast í réttu -breikin-, allar keppnir sem við tókum þátt í enduðu með því að sigurvegararnir komu úr smærri hópum sem höfðu stungið af. Við reyndum, að ráði Boga, halda okkur meðal fremstu 10 og reyna að spretta yfir til hópa sem virtust vera að losna frá. En þó kom allt fyrir ekki, það voru ekki réttu hóparnir og við sátum oftast eftir þegar hópurinn brotnaði upp. En kenning Boga er að það sé betra að vera úrvinda framarlega í öðrum hóp ef maður kemst ekki í -breikið- en vera aftarlega og sjá ekki einu sinni þegar hlutirnir gerast. Og ef maður heldur sig framarlega eru góðir möguleikar á að komast með og taka þátt í fjörinu.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter