Á vegum Hjólrreiðanefndar verður efnt til sérstakrar dagskrár um hjólreiðar helgina 4. - 6. maí .
Danski hjólreiðamaðurinn Jack Arvid Olsen mun heimsækja okkur og vera með þrjú námskeið og fyrirlestur um æfingar og keppnir. Jack mun í umfjöllun sinni leggja út frá svo kallaðri Pafei-æfingatækni sem er að ryðja sér til rúms innan hjólreiðaíþróttarinnar.
Föstudag, laugardag og sunnudag kl. 14:00 til 15:30 verða hópæfingar í leikfimisal í húsi ÍSÍ, 2. hæð, Engjateig 6. þar sem Jack mun leiða menn í gegnum bæði líkamlegar ogsálfræðilegar æfingar. Laugardaginn 5. maí kl. 18:00 til 20:00 heldur Jacksíðan fyrirlestur um efnið í víðara samhengi á sama stað.
Fyrirlesturinn verður opinn öllum aðgangseyrir kr. 1000, en skráð verður íæfingatímana þar sem fjöldi þáttakenda er takmarkaður. Áhugasamir geta skráð sig hjá Pálmari á e-mail:
palmar@pk.is. Fyrirlestur og æfingar verða á dönsku . Góðir félaga, nýtið ykkur þetta einstaka tækifæri og takið frá helgina 4. -6. maí.