 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Bláfjallakeppnin |
fimmtudagur, maí 3 |
 |
 |
 |
Hafsteinn Ægir Geirsson úr HFR vann Bláfjallakeppnina með nokkrum yfirburðum. Hafsteinn var einnig fremstur af öllum þegar þyngdarforgjöfin hafði verið reiknuð út. Í kvennaflokki sigraði Lára Bryndís Eggertsdóttir úr Hjólamönnum, einnig með yfirburðum. Í öðru sæti varð Sólveig Einarsdóttir en því miður voru einungis tveir keppendur í þessum flokki. Í öðru sæti í karlaflokki varð Gunnlaugur Jónasson úr Hjólamönnum 54 sek á eftir Hafsteini en Davíð Þór Sigurðsson, HFR varð þriðji, 1 mín. 45 sek. á eftir fyrsta manni. Haukur reiknimeistari Hjólamanna og höfundur þyngdarforgjafarinnar mætti með endurbætta útgáfu af þessu sinni, en það hafði ekki áhrif á stöðu efstu manna, pallurinn í forgjafarflokknum var nákvæmleg eins skipaður og í opna flokknum, Hafsteinn fyrstur, þá Gunnlaugur og Davíð þriðji. En meðal þeirra sem komu þar á eftir hafði forgjöfin meiri áhrif og hástökkvarinn var eins og í fyrra, formaður Hjólamanna, Elvar Örn Reynisson. Hann bætti sig um 9 sæti að þessu sinni. Sigurvegararnir og þeir sem næstir komu fengu óvenju vegleg verðlaun í formi orkudrykkja og fæðubótarefna frá Afreksvörum í Síðumúla, en þar geta Hjólamenn keypt þessar vörur með góðum afslætti. Heildarúrslit
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |