 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
1. bikar, fjallahjól |
mánudagur, maí 7 |
 |
 |
 |
Hjólreiðafélag Reykjavíkur heldur fyrsta bikarmótið í fjallahjólreiðum á keppnistímabilinu miðvikudaginn 09. maí í Öskjuhíðinni. Keppt er í flokkum 15-16 ára, 17-18 ára, meistaraflokki karla og kvenna. Keppt er í flokki H30+ og H40+ karla og kvenna.Brautin er 2,2 km að lengd og 55 metra hækkun. Keppnin hefst kl 19:00 og hjólaðir verða 10 hringi. Keppni er lokið þegar fyrsti keppandi hefur lokið 10 hringjum.
Brautarskoðun verður þriðjudaginn 08. maí, lagt verður af stað frá félagsheimili HFR við Siglunes í Nauthólsvík kl: 18:15. Keppendur eru vinsamlega beðnir um að skrá sig sem fyrst til keppni með því að senda E-mail á hfr@vortex.is þar sem fram kemur nafn og kennitala , keppnisgjald í forskráningu á netinu er 1500 krónur, en 2500 ef keppandi skráir sig á mótstað. Skráning og skoðun öryggisbúnaðar hjóla fer fram í félagsheimili HFR við Siglunes í Nauthólsvík.
Keppendur sem greiða keppnisgjöld á netinu eru beðnir um að senda kvittun til hfr@vortex.is þar sem fram kemur nafn og kennitala. Kennitala Hjólreiðafélags Reykjavíkur: 430194-2089 Reikningsnúmer: 132-26-2089 (Landsbankinn í Smáralind) Verðlaunaafhending fer fram í félagsheimili HFR, Keppnisstjóri/brautarlagning: Albert Jakobsson Dómari: Brynjólfur Magnússon Tímavörður: Þorsteinn Helgasson Skráning/gjaldkeri: Smella á tengil til að skoða kort af brautinni. Fjallahjólabrautin í Öskjuhlíð.Brautin er 2,2 km að lengd og með samanlagðri hækkun upp á 55 metrar. Brautin samanstendur af góðri blöndu af einstíg, skógarstíg og malarstíg .
kort af brautinni
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |