
Keppnin frá París til Roubaix er á morgun, sunnudaginn 15. apríl. Keppnin er nú haldin í 105. sinn. Þessi keppni sem er 259 km löng og þar af rúmlega 50 km af steinlögðum drullustígum eða samtals 28 köflum um t.d. hinn fræga d'Arenbergskóg sem oftar en ekki skilur keppendur að. Keppnin hefur fengið viðurnefnið "helvíti Norðursins" og er ein af gömlu klassísku keppnunum sem má alls ekki hrófla neitt við.
Myndin er af George Hincapie eftir að hann tók slæma byltu í keppninni 2006.
|