Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Sumardagurinn fyrsti
fimmtudagur, apríl 19
6 hressir Hjólamenn mættu á æfingu í morgun kl 7:30 og lögðu á Nesjavelli. Vetur og Sumar frusu saman sem samkvæmt gamalli þjóðtrú þíðir víst afskaplega gott veður í sumar, veitir ekki af fyrir okkur hér á klakanum. Hitastigið var 4 gráður í mínus þegar við lögðum af stað. Þessa mynd tók Brad á leiðinni upp Elliðarárdalinn.
Sólin var fljót að verma okkur þegar við hjóluðum í átt að hinum snarbröttu brekkum á Hengilsvæðinu. Þessi leið er snilld til að æfa spretti upp brekkur enda nóg af þeim en inn á milli leynast kaflar örlítið niðrímót þar sem Hjólamaðurinn fær hvíld. Þessa mynd tók Brad á leiðinni upp á Hengilsvæðið.
Einn varð frá að hverfa vegna tímaskorts en 5 skiluðu sér upp á Hengilsvæðið. Þar skildu leiðir og 2 ákváðu að skella sér í Nesjavallabrekkuna og hjóla hana upp og niður og svo Grafningin og Mosfellsheiði heim. Hinir létu sig rúlla niður til Reykjavíkur og undirritaður hjólaði svo til móts við HFR og gesti sem samankomnir voru í Grafarholti. Hjólaði svo með þeim upp í Mosfellsdal. Myndin er tekinn þegar leiðir skildu upp á Hengilsvæðinu, tveir jálkar (100+) voru í hópnum og alveg sérlega stoltir af afreki dagsins.