
Góður hópur var mættur eldsnemma á skírdag til að hjóla saman. Á Þingvelli var haldið og var 8 manna hópnum skipt í tvennt í Mosfellsdalnum. Hægari hópurinn var ekkert svo hægur og mætti nokkrum mínotum á eftir á Þingvelli þar sem rekstur þjónustumiðstöðvarinnar tryggður með kaffi, gos og pylsukaupum.

Hópurinn hjólaði svo í gegnum Almannagjá á leiðinni heim til að fá smá "Paris-Roubaix" fíling í þetta. Eftir 100+ km kom hópurinn saman í bæinn allir ánægðir með sitt. Sérlega var þetta skemmtilegt og vonandi verða enn fleiri á laugardaginn þegar við hittumst aftur kl 7:30 við Sprengisand.