Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Hugmynd að allt öðru fyrirkomulagi á keppnum
mánudagur, apríl 9
Vinir okkar í Færeyjum hafa haldið allmargar fjallahjólakeppnir í vetur og hefur hinn efnilegi Torkel Veyhe verið sigursæll og skotið Gunnari Dal Ohlsen ref fyrir rass. Þetta er hugmynd sem ég tel við ættum að íhuga að taka upp hjá okkur, að halda fjallahjóla- og götuhjólamótin á sitthvorum árstímanum. Fjallahjólamótin gætu verið síðari hluta vetrar frá janúar og endað með Íslandsmóti í maí. Svo tæki götuhjólavertíðin við yfir sumartímann. Þannig dreifist álagið sem er á þeim keppendum sem keppa í báðum greinunum og keppnistímabilið lengist. Auðvitað mætti halda eitt og eitt fjallahjólamót að sumrinu, eins og Bláalónskeppnina og Heiðmerkuráskorunina. Þetta held ég að hljóti að vera kostur fyrir keppendurna okkar og sama gildir um þá sem koma að keppnishaldi.
Á myndinni er Færeyingurinn Bogi Kristiansen í fjallahjólakeppni í Danmörku nú í vetur. Bogi býr í Köben og hefur verið mikið á fjallahjólinu að undanförnu og keppt reglulega á þeim vettvangi.