 |

Í næstu viku er stefnt að öflugum götuhjólaæfingum. Ætlunin er að hjóla frá Sprengisandi á fimmtudag (skýrdag), laugardag og mánudag (2. í páskum) og taka góða túra. Farið verður frá Sprengisandi kl. 07.30 alla dagana. Ef það verður hálka mætum við á fjallahjólum.
Við ætlum einnig að taka forskot á sæluna núna á laugardaginn, þann 31. mars, mæta á Sandinn kl. 7.30. Nema það verði hálka en þá mætum við á fjallahjólum, eða hellidemba, þá færum við okkur væntanlega inn í bílahúsið við Kringluna.
|