 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Fín sunnudagsæfing |
sunnudagur, mars 4 |
 |
 |
 |
5 fræknir Hjólamenn (Gunnlaugur, Guðni Páll, Sigurgeir, Haukur og Elvar formaður sem fékk afhent glæsilegt félagskírteini í dag, að sjálfsögðu merkt 001) voru mættir á æfingu í morgun og var stefnan tekinn upp í Heiðmörk. Mikil hálka var á stígunum en sem betur fer voru allir á nöglum til að takast á við færðina. Þegar upp í Heiðmörk var komið skiptist hópurinn og héldu Guðni Páll, Haukur og Elvar á slóðir skurða og jarðrasks sem Birgisson nokkur Kópavogsbúi fyrirskipaði á Reykvískri grundu í Heiðmörkinni. Þegar þangað var komið og eyðileggingin hafði verið augum borinn var haldið heim á leið í snjókomu sem gerði stígana aðeins viðráðanlegri hvað hálku varðar.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |