Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
6 Hjólamenn í Kringlunni
miðvikudagur, febrúar 7
Formaður Hjóls sýnir hvað hann er sterkur á góðri stundu á Hrunamannaafrétti síðasta sumar.
Þótt æfingin á sunnudag hafi af ýmsum ástæðum farið fyrir ofan garð eða neðan, voru hvorki meira né minna en 5 hjólamenn mættir á bílastæði Kringlunnar með götuhjól á laugardagsmorguninn, auk þess sem einn kíkti við á fjallahjólinu sínu. Undirritaður steyptist á hausinn í beygju þegar dekkið rúllaði af "tubulagjörð" rétt eins og hjá Elfari og Beloki um árið. Þetta var ekki sérlega slæmt fall en nóg til að gera mig óvígan á sunnudagsæfingunni. Ég held að ástæðan sé lélegt lím, því dekkið var límt á nýlega eftir kúnstarinnar reglum. En allt í allt var þetta hin besta skemmtun á þarna á laugardagsmorguninn. Það má til geta þess að við erum í Kringlunni frá 8.00 á laugardagsmorgnum á götuhjólum og verðum það líklega fram á vor.