|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Áramót Hjólamanna
sunnudagur, janúar 7
Gunnlaugur Jónasson sigraði fyrstu hjólreiðakeppni ársins sem haldin var í bílastæðahúsi Kringlunnar. Gunnlaugur hjólaði 22 hringi á tímanum 31:16, Brad Evans lenti í öðru sæti á tímanum 31,55 og Sigurgeir Agnarson varð þriðji á 31:56. Fjórði varð svo Haukur Eggertsson sem lét ekki hringa sig þrátt fyrir stuttan hring, á 32:38, Elvar Örn Reynisson formaður Hjólamanna í 5. sæti þar á eftir og síðan Guðni Páll Daníelsson 6.
Lengi vel hjóluðu þeir Gunnlaugur, Sigurgeir og Brad saman en eftir 16 hringi gaf Gunnlaugur í og hjólaði frá hinum. Brad og Sigurgeir hjóluðu svo saman í mark og sprettu um annað sætið.


Keppnin fer fram á 750 metra löngum hring sem hlykkjar sig um allt húsið, upp á aðra hæð norðan megin og inn í þröngar aðstæður sunnanmegin í gömlu Borgarkringlunni. Margir Hjólamenn æfa einmitt af kappi á veturna á þessari sömu braut varðir fyrir veðri og vindum. Haukur M. Sveinsson var keppnisstjóri fyrir hönd Hjólamanna, og naut hann aðstoðar frá Fione Scholand Evans.

Gunnlaugur fékk að launum, fyrir utan hinn hefðbundna gullverðlaunapening, 7000 króna inneignar bréf á glæsilegu rafrænu formi sem hann getur straujað í öllum þeim fjölmörgu verslunum sem Kringlan hefur upp á að bjóða.

Hákon hirðljósmyndari hjólamanna tók glæsilegar myndir af þessum atburði sem má sjá hér.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter