Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Góð sunnudagsæfing
sunnudagur, janúar 21
Maðurinn á myndinni er ekki félagi í Hjólamönnum
Það voru sex funheitir Hjólamenn mættir á Sprengisand í morgun í 10 stiga frost til að taka létta æfingu. Stefnan tekinn á Heiðmörk en þar hittum við tvo valinkunna kappa úr HFR, þá Hafstein og Árna. Það voru því átta manns sem hjóluðu bílveginn gegnum skóginn og hitinn vel fyrir neðan 11 mínúsgráður. Skógarstígarnir eru aðeins færir á gönguskíðum um þessar mundir, reyndar ótrúlegt hvað skógurinn er ólíkur því sem maður á að venjast þegar reiðskjótanum er skipt út fyrir skíði. En það voru ánægðir Hjólamenn sem sneru til byggða eftir velheppnaða hjólaæfingu, þó sumir væru orðnir nokkuð fótkaldir.