 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Aðalfundur |
þriðjudagur, nóvember 14 |
 |
 |
 |
Aðalfundur Hjólreiðafélagsins Hjólamenn var haldinn 8. nóvember síðastliðinn. Fundargestir snæddu saman kvöldverð í boði félagsins. Elvar Örn Reynisson var endurkjörinn formaður félagsins, Guðni Dagur gjaldkeri og Guðni Páll ritari. Gunnlaugur Jónasson og Friðrik Ottesen voru kosnir í varastjórn.
Hjólamaður ársins 2006 var svo tilkynntur en Guðni Páll var sá Hjólamaður sem átti þann heiður skilinn. Hann hjólaði dagleið í Frönsku Hjólreiðunum, rúma 200 km og 300 km keppni í Svíþjóð. Fyrir utan heiðurinn af tilnefningunni fékk Guðni Páll gjafabréf á hinn glæsilega veitingastað Silfur á Hótel Borg.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |