Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Síðasti Þingvallatúrinn í sumar!!!
laugardagur, október 28
Hjólamennirnir Haukur og Elvar mættu hressir á aukaæfingu í morgun og var góð veðurspá og loforð frá Sigga Stormi til þess að götuhjól urðu fyrir valinu og héldu kapparnir út úr bænum í morgun.
5 gráðu hiti var það sem í boði var og nóg fyrir okkur til að Mosfellsheiðin yrði fær fyrir mjóu dekkin á götuhjólunum. Veðurspáin stóðst og þegar leið á daginn gægðist sólin á milli skýjanna og hitastigið hækkaði um nokkrar gráður.
Fínasta æfing og óvenjulegt að hjóla á götuhjólum meðfram snjóruðningum sem fylgdu okkur á efstu hæðum Mosfellsheiðarinnar. Við vonum að þetta verði ekki síðasta götuhjólaæfingin í sumar, stefnan er tekin á að endurtaka leikinn næstkomandi laugardag, þ.e. ef Siggi Stormur og hans veðurspár leyfa.