Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Fjallahjólakeppnir og leiðir
föstudagur, október 20
Í ljósi mikillar umræðu um stígagerð fékk formaðurinn mikinn áhuga á því allt í einu að fara í könnunarleiðangur um núverandi slóða og athuga hvort ekki væri hægt að búa til skemmtilega króka á milli trjáa, yfir rætur, steina og troðna slóða. Komst hann að því að miklir möguleikar eru fyrir hendi. Fór hann um Heiðmörk og skóginn á milli Rauðavatns og Suðurlandsvegar.
Næsta skref er að áhugasamir fari í sína könnunarleiðangra og í framhaldi af því að fara á hnén fyrir framan skógarverðihuga hvort ekki sé hægt að gera skemmtilegt fjallahjólasvæði sem hægt yrði að nota til æfinga og keppnishalds í framtíðinni. Sumstaðar þarf bara að grisja trén örlítið hærra og jafnvel bara að hjóla leiðina nokkrum sinnum til að troða niður slóða. Myndavél var með í för og smellt var af á nokkrum góðum stöðum. skoða myndir