 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Æfingar á næstunni |
fimmtudagur, október 12 |
 |
 |
 |
Á fimmtudögum ætlum við Hjólamenn að bjóða upp á fasta leið á næstunni, hjóla rangsælis Reykjavíkurhringi. Farið verður frá Sprengisandi kl. 18.30, yfir Elliðaárnar á stokknum og þaðan rakleitt inn að Sundahöfn. Þar verður farið á nýja stíginn og Örfirsey sleppt. Við förum ekki fyrir Seltjarnarnes heldur beygjum inn á Nesveg/Ægisíðu við Eiðistorg. Þetta gerir harðari Hjólamönnum kleyft að taka Seltjarnanesið á spretti og slást svo aftur í hópinn. Svo er upplagt fyrir þá sem mæta seinna að hjóla réttsælis á móti hópnum. Þennan hring ætlum við að hjóla á flestum fimmtudagsæfingum á næstunni en það verður tilkynnt með fyrirvara þegar aðrar leiðir verða fyrir valinu. Sunndagsæfingarnar verða áfram kl 9.30 frá Sprengisandi og þá liggur leiðin oftast í Heiðmörk.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |