Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Bókin á náttborðinu
þriðjudagur, október 24
Í síðustu borgarferð minni var kippt með heim bók um Frakklandshjólreiðarnar sem ber nafnið "The official Tour de France 1903-2004". Í bókinni er fjallað um keppnina, ár frá ári og mikið af skemmtilegum myndum frá hverju ári keppninnar. Það er skemmtilegt að fræðast um fyrstu ár keppninnar, þegar fjórir fyrstu voru dæmdir úr keppni 1904, fyrsta sinn í Pyraníufjöllunum á eins gírshjólum árið 1910 og fyrsta sinn upp Alpe-d'Huez 1952, þegar Fignion tapaði með átta sekúndum 1989, dauði fabio 1995 þekkja flestir. Þá er bara að lesa öll hin árinn og fræðast enn meira um keppnina. Bókin fæst að sjálfsögðu á Amazon.com