Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Tjarnarspretturinn, Hafsteinn sigraði
laugardagur, september 16
Í dag var haldin hjólreiðakeppni í kringum tjörnina, svokallaður Tjarnarsprettur. Hafsteinn Ægir Geirsson sigraði keppnina sem var 18 km eða 15 hringir. Rétt á eftir kom í mark Árni Már Jónsson og Mikael Schou í því þriðja. Davíð Þór Sigurðsson kom í mark fjórði og Hjólamaðurinn, Gunnlaugur Jónasson í fimmta sæti. Hjólamenn voru alls fjórir í Tjarnarsprettinum og var Hákon Halldórsson í fínu formi og lét ekki hringa sig en það er mjög flott afrek þar sem hringurinn er mjög stuttur og fyrstu menn fljótir að ná í skottið á hægustu mönnum. Formennirnir Haukur og Elvar, náðu vonum framar 11 og 10 hringjum áður ein þeir voru hringaðir.