|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Ísland - Færeyjar dagur 1
föstudagur, september 1

Mynd Albert Jakobsson

Landskeppnin fór glæsilega af stað með kriterium keppni á Álftanesi á föstudagskvöldið. Færeyski sprettsnillingurinn Bogi Kristiansen sigraði með yfirburðum í opnum flokki, Bryndís Þorsteinsdóttir í kvennaflokki þar sem hún keppti ein og Rúnar Karl Elfarsson kom skemmtilega á óvart þegar hann sigraði unglingaflokk. Hann nældi jafnframt í fjórða sætið í opnum flokki á undan mörgum valinkunum kappanum.
Í opna flokknum kom Gunnar Dal Olsen annar í mark og Eli Kristjansen þriðji, báðir frá Færeyjum.

Færeyingar hafa því náð góðu forskoti á okkar menn í landskeppninni, en því miður var okkar sterkasti maður, Hafsteinn Ægir Geirsson, ekki með vegna bakmeiðsla sem hann hlaut í nýju brunbrautinni á Akureyri um síðustu helgi.

Keppnin í dag var ákaflega vel haldin en það voru HFR-menn sem sáu um þennan legg og öll framkvæmdin til mikils sóma, brautarverðir á hverju horni, undanfari með blikkljós á bílþakinu og svona mætti lengi telja. Má segja að hér hafi verið um að ræða sýnikenslu í keppnishaldi sem allir geta lært af.

Á morgun mun reyna á keppendur en þá verður Grafningur hjólaður þrívegis fram og til baka en brekkurnar taka vel á.


Heildarúrslit er hægt að skoða hér.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter