|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Landskeppni Ísland-Færeyjar
mánudagur, september 4


Myndir Albert Jakobsson: Færeyingar fagna sigri í landskeppni og lokapallur í einstaklingskeppni.


Það var Hjólamaðurinn Gunnlaugur Jónasson sem sýndi styrk sinn í tímakeppni og sigraði síðasta legg í keppni frændþjóðanna, Íslands og Færeyja. Gunnlaugur var í fjórða sæti þegar einn dagur var eftir, 6 sekúndum á eftir fyrsta manni. En Gunnlaugur gerði gott betur en að taka inn þessar sekúndur, hann lauk keppni nærri mínútu á undan Gunnar Dal Olsen í öðru sæti og sigraði þar með heildarkeppni einstaklinga. Torkel Veyhe náði þriðja besta tímanum en Hlynur Þorsteinsson hjólaði sína bestu tímakeppni nokkru sinni og varð fjórði, einni sekúndu á eftir Torkel. En þeir félagar voru ekki nema rétt um hálfr mínútu á eftri Gunnari. Hlynur tryggði sér þar með þriðja sætið í samanlagðri keppni einstaklinga og fyrsta sæti í unglingaflokki.
Bryndís Þorstiensdóttir sigraði í kvennaflokki en hún hjólaði ein í þeim flokki að þessu sinni.

Úrslit úr tímakeppninni

Færeyingar fóru með sigur af hólmi í sjálfri landskeppninni en þar gilti samanlagður tími þriggja fyrstu manna á hverri dagleið. Því miður vantaði okkur Íslendinga nokkra af okkar sterkustu mönnum vegna meiðsla og veikinda. Færeyingar hafa því unnið landskeppnina þrisvar en við Íslendingar einu sinni og varðveita Færeyingar því farandbikarinn þetta árið.

Það var gaman að sjá hve margir úr báðum félögum komu að því að gera þessa keppni sem glæsilegasta, og viljum við Hjólamenn þakka öllum þeim sem komu að keppnishaldi fyrir frábært starf.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter