|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Landskeppni 2. dagur
laugardagur, september 2


Myndir: Hákon Halldórsson

Gunnar Dahle Olsen frá Færeyjum sigraði á annarri dagleið í endaspretti á annarri dagleið. fjórir hjólreiðamenn, þeir Gunnar, Bogi Kristjansen, Brad Evans og Gunnlaugur höfðu slitið sig frá öðrum eftir miklar sviptingar í brekkunum í Grafningnum. Hlynur hjólaði þá inn í lokin og gerði sér lítið fyrir og nældi sér í 3. sætið í sprettinum en Bogi varð annar.
Í heildar keppninni leiðir Bogi með 3 sekúndum á undan Gunnari, en Hlynur er í þriðja sæti 5 sek á eftir fyrsta manni og Gunnlaugur fjórði, 6 sek á eftir fyrsta. Hlynur leiðir nú Unglingaflokkinn 17 sek á undan Torkil Veyhe frá Færeyjum. Bryndís Þorsteinsdóttir sigraði í kvennaflokki eins og á fyrstu dagleið.

Færeyingar juku því forskot sitt á Íslendinga í landskeppninni í dag og er frekar ólíklegt að okkar menn nái að snúa dæminu við í tímakeppninni á morgun, sunnudag en allt getur gerst.

Líklegt má telja að það verði Gunnar Olsen og Gunnlaugur sem takist á um heildar sigurinn í Tímakeppninni við Blálónið á morgun, en þeir hafa háð marga hildina í þeirri grein. Í unglingaflokki verður baráttan milli þeirra Torkil Veyhe og Hlyns. Torkil er góður í Tímakeppni en Hlynur okkar hefur þó sýnt að hann hefur ótrúlega eiginleika til að berjast þegar hann þarf það virkilega, svo allt getur gerst


Heildarúrslit

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter