Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Kambakeppnin
miðvikudagur, september 6
Hlynur sigurvegari í Kömbunum í fyrra. Ljósmynd Elvar Örn Reynisson.
Hjólreiðafélag Reykjavíkur heldur hina árlegu Kambakeppni í götuhjólreiðum sunnudaginn 10. september 2006. Keppnin hefst klukkan 10:00.
Það var ákveðið á stjórnarfundi HFR að hafa lágmarksþátttöku átta skráningar til að keppnin verði haldin. Hjólað verður frá hringtorginu við Hveragerði og að afleggjaranum þar sem Slysavarnarskýlið var upp á miðri Hellisheiði. Þetta er ca. 8,9 km og 320 m hækkun. Hjólreiðamenn hafa haft það fyrir sið að keppa upp Kambana í rúm tíu ár. Metið á þessari leið, frá hringtorgi við Hveragerði, upp að sæluhúsinu á Hellisheiði, er 18:29?. Keppt er í flokkum 18 ára og yngri Opnum flokki 19-39 og Garpar (40+), kvenna og karlaflokki. Keppnisgjald er 1000 krónur og þarf að vera búið að skrá sig og greiða inn á reikning HFR fyrir kl. 13:00 fimmtudaginn 07 sept, Keppendur greiða keppnisgjaldið inn á reikning HFR.
Kennitala Hjólreiðafélags Reykjavíkur: 430194-2089 Reikningsnúmer: 132-26-2089 (Landsbankinn í Smáralind)
Vinsamlega sendið kvittun og skráningu á hfr@vortex.is , fyrir kl 13:00, 7. sept. Skoðun öryggisbúnaðar lýkur hálftíma fyrir keppni. Keppendur eru á eigin ábyrgð í keppnum HFR. Allir keppendur skulu nota hjálm.