 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Íslandsmeistarakeppni í Tímaþraut |
fimmtudagur, ágúst 3 |
 |
 |
 |
 Þríþrautarfélag Reykjavíkur heldur Íslandsmeistarakeppni í Tímaþraut á Þingvallavegi miðvikudaginn 9.ágúst kl. 19:00 Mæting er við Ljósafossskóla (við Ljósafossvirkjun í Soginu) í síðasta lagi 1 klst fyrir keppnisstart. Hjólað verður frá Ljósafossi í átt til Þingvalla að Vatnsvík og sömu leið tilbaka (snúið við við keilu), samtals um 30km. sjá meðfylgjandi mynd.
Keppt verður í hefðbundnum flokkum (opnum flokki, kvennaflokki, h30 og h40) en þó verður bara einn unglingaflokkur, 18 ára og yngri. Íslandsmeistarar verða krýndir í opnum flokki, kvennaflokki og unglingaflokki (ef þátttaka leyfir). Að öðru leyti vísast í keppnisreglur Hjólreiðanefndar ÍSÍ.
Þátttökugjald er kr 1500,- ef greitt er fyrir kl. 14 á miðvikudaginn, en hækkar í kr 2000,- eftir það. Keppnisgjald má greiða inn á reikning 513-14-605768, kt. 180172-3789 Vinsamlegast sendið kvittun á jensk@simi.is
Hjólamenn prufuðu brautina og tóku prófílin í gegnum hina geisivinsælu Pólar æfingamæla. Mælingunni skal taka með fyrirvara enda ekki gefin út af keppnishaldara en gefur þó ágæta mynd af brautinni.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |