|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Landskeppni Ísland Færeyjar 1.-3. sept
þriðjudagur, ágúst 29

Um næstu helgi verður efnt til landskeppni við Færeyinga. Kepptar verða 3 dagleiðir í nágreni höfuðborgarsvæðisins á þrem dögum, á Álftanesi, í Grafningnum og við Bláalónið. Keppt verður í tveim flokkum í báðum kynjum, Opnum flokki sem allir þátttakendur verða með í og flokki 18 ára og yngri. Átta Færeyingar hafa skráð sig til leiks og er búist við góðri þátttöku Íslendinga. Helstu viðburðir helgarinnar verða sem hér segir:

Föstudagur kl. 19.00: Álftanes, hópstart, 12 hringir ca. 37,5 km. Kvennaflokkur hjólar 6 hringi, ca.18,75 km. Ræst nærri innkeyrslu að Bessastöðum.

Laugardagur kl. 11.00: Grafningur, hópstart ca. 60 km.
Hjólaðir verður frá gatnamótum við Nesjavallabrekku í norður að Þingvallaleið um 10 km leið og snúið. Þessi leggur farinn þrisvar sinnum. Kvennaflokkur hjólar 1 bunu, ca.10 km.

Sunnudagur kl. 12.00: Tímakeppni við Bláa Lónið, 20 km, farið í Bláalónið á eftir. Kvennaflokkur hjólar 10 km.

Sunnudagur kl. 19.00: Pizzaveisla.

Þátttökugjald 1000 krónur fyrir hverja dagleið en 2000 ef greitt er samtímis fyrir allt mótið. Hægt er að greiða inn á reikning Hjólamanna nr. 101 26 705815, kt. 580105-0840 og senda staðfestingu á netfangið: hjolamenn@internet.is fyrir kl. 12 á föstudag.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter