|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Tour de france - Time trial
laugardagur, júlí 8
Jæja þá er fyrsta alvöru prófið lagt fyrir keppendurna í Frönsku hjólreiðunum en í dag fer fram tímataka og eru allir keppendur ræstir með 2 mínotna millibili og þá er bara að spíta í og hjóla þessa 52 km á sem skemmstum tíma.

Þessi keppni hentar stóru og sterku mönnunum á maðan fjallaleiðirnar sem byrja strax í næstu viku henta frekar þeim nettari.

Talandi um stóra menn í Frönsku Hjólreiðunum þá er þyngsti maðurinn, Magnus Backsded sá er ber þann vafasama heiður en hann er 96 kg á meðan algeng þyngd hjólreiðamanna er í kringum 60-70 kg. Magnus stóð sig vel í gær og reyndi að stinga af með tveimur öðrum og hjóluðu þeir einir nánast alla þá 189 km sem hjólaðir voru í gær. Það gékk þó ekki því hópurinn eða "le peleton" náði þeim þegar aðeins 9 km voru eftir að keppninni og Robbie McEwen tókst að tryggja sinn þriðja sigur í keppninni í ár. Tom Boonen sem er í Gulu treyjunni hefur enn ekki unnið neina dagleið en með stöðuleika hefur honum tekist að halda Gulu treyjunni.

Bendi á að hægt er að fylgjast með keppninni í dag beint á netinu á eurosport og einnig á heimasíðu keppnishaldara letour.fr en þar eru allir millitímar "live".

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter