 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
Liðakeppni |
sunnudagur, júlí 23 |
 |
 |
 |
Í dag fór fram liðakeppni eða æfingakeppni með því markmiði að þjálfa menn í að vinna saman. 8 keppendur mættu til leiks í þessa mjög svo óformlegu keppni og var því tekið upp á því að skipta mönnum í 4 lið. Keppendur voru ekki allir að skilja tilgang keppninnar og tóku Einar og Torben upp á því að skilja liðsfélaga sína eftir en það voru þeir Elvar og Brynjólfur. Unnu þeir ágætlega saman en Brynjólfur, Einar og Elvar hjóluðu bara einn hring. Hákon og Peter sem voru saman í liði og unnu stórvel saman þar til það leiðinlega atvik gerðist að tjara og drulla urðu þess valdandi að Peter þurfti að hætta keppni. Voru það því einungis Árni og Hlöðver sem luku keppni á 2 tímum og 19 mínotum.
Of fáir keppendur voru til þess að liðakeppnin fengi að njóta sýns og of mikið bil á milli keppenda þannig en það er vonandi að svona keppnir verði haldnar oftar og mæli ég með t.d. Þingvallahringnum góða til þess brúks.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |