|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Liðakeppni
þriðjudagur, júlí 18

Næstkomandi sunnudag verður æfingakeppni í Hvalfirði.

Keppnin verður haldin kl 11:00 og er rásmark við Félagsgarð við Láxá. u.þ.b. 10 km akstur frá syðri Gangnamuna. Keppt er á braut sem er 32 km og verður hún hjóluð tvívegis, samtals 64 km.

Um liðakeppni er að ræða og eru 3 saman í liði, allir keppendur eru ræstir saman og reynir á samvinnu keppenda því tímin er tekin á þriðja manni í hverju liði. Skráning er hafin, keppendur eru beðnir að skrá sig á emaili elvarorn@hn.is. Þeir sem vilja vera saman í liði taki það fram og finni skemmtilegt nafn á liðið. Þeir sem eru ekki búnir að finna liðsfélaga þurfa ekki að hafa áhyggur að því,


Eins og áður sagði er um Æfingakeppni að ræða og allt er þetta gert til okkur til skemmtunar, möguleiki er á að hjóla brautina einu sinni og einnig fyrir þá sem vilja kannski hjóla enn meira er möguleiki á að hjóla brautina þrívegis.
Markmiðið með þessari keppni er að keppendur venjist að hjóla saman í hóp, skilji hvað samvinna hópsins gerir og auðvitað að auka þatttöku í lengri mótum.

Ekki verður mikið af starfsfólki, frekar viljum við að fólk taki þátt. Keppendur er beðnir að fara varlega á snúning og allir sem gætu hugsað sér að aðstoða við keppnina eru beðnir að hafa samband við Elvar elvarorn@hn.is

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter