|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Kerlingarfjöll
fimmtudagur, júlí 6

15. júlí næstkomandi verður Kerlingarfjallaþrautin haldin í 2. sinn. Í fyrra tóku um 15 keppendur þátt en stefnt er að 50 þátttakendum í ár. Keppt verður í tveimur greinum, viðavangi og bruni á fjallahjólum. Annarsvegar verður hjólað frá skálanum í Kerlingarfjöllum inn í Setur þar sem skáli Ferðaklúbbsins 4x4 er og til baka. Alls eru þetta 50 km. af geysifjölbreyttum og krefjandi jeppaslóða allt frá harðpökkuðu rennisléttu moldarbarðarennsli og yfir í nýrunnið úfið basalthraun. Einnig eru nokkrar ár sem þarf að hjóla yfir en þær eru allar af minni gerðinni. Besti tíminn í fyrra var 2 klst. og 45 mín. Víðavangskeppnin hefst kl. 10.00. Hjálparsveit Skáta í Kópavogi sér um öryggisgæslu í báðum mótunum. Kastalabrunið fer svo fram síðar sama dag kl. 15.00. Brunið er hluti af bikarmótaröð Hjólreiðanefndar ÍSÍ. Rásmarkið er við ?Kastalan? gamlan fjallaskála sem notaður var þegar Skíðaskólinn í Kerlingarfjöllum var starfræktur á sínum tíma og endamarkið við svokallaða ?Lífshættu?. Leiðin er um 2 km og fallhæðin er um 250 metrar. Á laugardagskvöldið fara svo allir í heitu pottana og svo verður grill um kvöldið. Á sunnudaginn er síðan ráðgert að hjóla niður Leppistungur með leiðsögn og trússbíl en þá er komið niður austan megin við Gullfoss.

Öllum er velkomið að taka þátt en keppnisgjald er kr. 1.000.- fyrir hvort mót fyrir sig en ferðin niður Leppistungur er öllum opin og ókeypis. Hægt er að leggja inn á reikning Hjólreiðafélags Reykjavíkur 132-26-2089 kennitala: 430194-2089.

Upplýsingar um gistingu í Kerlingarfjöllum er í síma 852 5132 og fæst afsláttur ef tilgreint er að þið séuð að fara að taka þátt í mótinu. Einnig er prýðilegt tjaldstæði á svæðinu.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter