|
|
|
|
 

Fréttabréf | Sölutorg | Hjólamannaspjall | Æfingar | Reglur | Stjórnin | um félagið

Graham Watson:
Æfingar Hjólamanna:
Þrið-Mið 17:30 Fjallahjól
Sun 9:30 Sumar-götu- Vetur-fjallahjól
Hjolamenn.is:
 
Textavarpið:
 
Veðrið á bls 162, 164, 165.
Gamlar fréttir:
Póstlisti:
Skráðu þig hér til að fá tilkynningar um æfingar og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð sig hér óháð hvort þeir séu í Hjólamönnum eður ei.
 
Leita á síðunni:
Leita á hjólamenn.is  
leita á netinu með google
 

 
 Engin sigur fyrir Frakka á "Bastille" dag
laugardagur, júlí 15
Í gær var þjóðhátíðardagur Frakka eða "Bastille" dagur. Miklar væntingar eru gerðar til Franskra hjólreiðamanna á þessum degi en í gær var það Yaroslav Popovych frá Úkarínu sem hjólaði til sigurs fyrir Discovery liðið og gerði þannig vonir Frakka um sigur að engu. Popovych hjólaði ásamt þrem öðrum sem saman stungu hópinn af. Þegar 10 km voru eftir af keppninni byrjaði Popovych að spretta almennilega úr spori og við það datt aftur úr eina von Frakka á sigri á "Bastille" degi en Christophe Le Mevel hafði ekki orku til að fylgja Spánverjanum Oscar Freire og Ítalanum Alssandro Ballan eftir en sá síðarnefndi lagði mikið á sig til að halda í við Popovych. Popovych sigraði svo auðveldlega og kom sér upp í 10 sæti í heildarkeppninni, um 4 mínotum á eftir Floyd Landis.

Í 100 ára sögu Frönsku hjólreiðana hafa Frakkar unnið 27 sinnum á "Bastille" degi. Franskt dagblað birti þó í gær frétt um 32 sigra á þessum degi frá upphafi en eins og áður sagði eru svo miklar væntingar til þessa dags að allt er gert til að fegra töluna. Talan er rökstudd þannig að þrívegis hefur Franskur hjólreiðamaður unnið heldarkeppnina þegar henni hefur lokið 14 júlí, Þá hefur tvívegis dagleið byrjað 14. júlí og lokið 15. júlí en í gamla daga þegar hjólaðir voru yfir 400 km í einu, voru keppendur stundum hjólandi yfir nótt og fram á næsta dag, og tvívegis þegar þessi staða hefur komið upp hefur franskur hjólreiðamaður unnið. Þulurinn á Eurosport gat svo bætt einum frönskum sigri við, með álíka pælingum, þannig að franska dagblaðið gæti hækkað töluna upp í 33 ef vill.

 Eldri fréttir

 

 
 
Hjólamenn.is | hjolamenn@internet.is | Elvar Örn Reynisson | Keyrt með blogger vefumsjón
 

 

  Site Meter