 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
Heiðmerkuráskorun |
föstudagur, júní 23 |
 |
 |
 |
Á Jónsmessunótt var í þriðja sinn haldin Heiðmerkuráskorun, keppni sem skógarverðir í Heiðmörk halda fyrir hjólreiðamenn og er bjartasta nótt ársins notuð til þess brúks.
Í ár var var alveg ný vídd í keppninni þar sem allir okkar bestu hjólreiðamenn voru uppteknir við keppnina Hjólað um Ísland. Virkaði þetta mjög hvetjandi fyrir almenning að mæta og spreyta sig á þeim þrautum sem skógarverðir setja fyrir hjólreiðamennina. Fyrir utan að hjóla upp hina snarbröttu Vífilstaðabrekku og yfir klettótta hæðir við Grunnuvötn var búið að setja trjáboli og dekk í veg fyrir keppendur. Þar sem áður var risa drullupollur var nú búið að moka slóðan í sundir og var ekkert annað að gera en að fara af hjólinu og hlaupa moldarhæðir með hjólið á Öxlinni.
Keppendur sem sáu tækifæri á sigri fóru hratt af stað á meðan aðrir létu sér nægja að hjóla á sínum hraða. Haukur Sveins gerði nokkrar tilraunir til að rífa upp hraðan en þegar komið var upp að Skógarhlíð höfðu Fylkir og Guðmundur tekið nokkra forystu sem Guðmundur hafði að lokum betur. Elvar og Tómas héldu í humátt á eftir þeim og hjóluðu þeir saman allt þar til Tómas stakk af í brekkunni bröttu við Vífilsstaðahlíð. Haukur Sveins sem hafði dottið nokkuð aftur úr um miðbik keppninnar var búinn að ná sér á strik og náði svo Elvari þegar komið var upp að Grunnuvötnum og háðu þeir mikla baráttu alla leið í mark og hafði Hakur betur með fjórum sekúndum.
Það er ljóst að hin skemmtilega Heiðmerkuráskorun er komin til að vera, þrátt fyrir að stór keppendahópur var upptekin við Hjólað um Ísland keppnina var þátttakendafjöldi fjórum fleiri en í fyrra eða alls 22.
Hjólamennirnir Elvar Örn og Haukur Eggertsson tóku báðir þátt bæði í fyrra og í ár. Elvar bætti tíma sinn um 7 mínotur og 24 sekúndur og Haukur bætti sinn tíma um heilar 14 mínotur og 8 sekúndur.
Hægt er að skoða myndir sem Albert tók hér
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |