Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Hafsteinn sigraði naumt.
sunnudagur, maí 28
Æsispennandi tímatökukeppni var haldin í morgun en hörð barátta var um fyrsta sætið á milli Gunnlaugs og Hafsteins. Hjólaðir voru 20 km á Þorlákshafnarvegi en hjólað var frá afleggjaranum við Hveragerði og hjólaðir 10 km á átt til Þorlákshafnar. Snúið var við og hjólað til baka. Vindurinn var eitthvað óhagstæðari á bakaleiðinni fyrir keppendur.
Gunnlaugur var 15 sekúndum á eftir Hafsteini eftir 10 km en aðeins 5 sekúndum á eftir honum við 15 km. Hafsteini tókst að tryggja sigurinn en aðeins skildu 35 sekúndubrot kappanna af. 24 keppendur skráðu sig til keppni og ljóst að sérstaks tímatökubúnaðar fer að verða þörf, svo ekki sé talað um þann litla mun sem var á mönnum.