Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Fimmtudagsæfing færð til morguns
miðvikudagur, maí 24
Á morgun er frídagur og því mun götuhjólaæfing dagsins færast og verður í fyrramálið kl. 8.30 en ekki kl. 19.00 eins vanalega. Við stefnum að því að hjóla upp Nesjavallaleið yfir Hengilinn og fara niður Nesjavallabrekkuna og snúa svo aftur í bæinn ef veður leyfir og ekki verður of kalt eða hvasst á fjöllum. Það hefur komið fram tillaga um að hjóla þessa leið á degi þrjú í Íslandshjólreiðunum. Ef veðrið bregst leitum við á skjólsælli leiðir í byggð.
Veðurstofan spáir svona: Norðaustan 8-13 m/s og skýjað með köflum. Norðaustan 3-8 og léttskýjað á morgun. Hiti 0 til 7 stig