Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei.
Leita á síðunni:
Bláfjallakeppni.
sunnudagur, maí 14
Hjólamenn halda keppni í tímatöku í Bláfjöllum miðvikudaginn 17. maí kl.19.00. Keppnin hefst rétt ofan við Bláfjallaafleggjara af Suðurlandsvegi oghjólað er upp að skála við Bláfjöll.
Keppt er í einum flokki, en keppnisvegalengd er tæpir 13 km og hækkun ca.350 m. Keppendur verða ræstir með mínútu millibil. Veitt verða tvennverðlaun, annars vegar fyrir skemmstan tíma og hins vegar fyrir skemmstantíma með þyngdarforgjöf.
Forskráning fer fram með tölvupósti til hjolamenn@internet.is. Keppnisgjölderu kr. 800 ef keppendur forskrá sig á fyrir kl. 12 á keppnisdag, en ellakr. 1000. Skráningu skal lokið í síðasta lagi 30 mínútum fyrir keppni.Keppendur eru hvattir til að skrá sig í tíma en það er mikið hagræði fyrirkeppnisnefnd. Reikningur er 101-26-705815 og kt. 580105-0840.
Gert er ráð fyrir að keppendur hjóli að meðaltali á 275 W og upp í 290 W eftir þyngd, en ekki verður leiðrétt fyrir núningsáhrifum götu. Hins vegarverður áhrifum þyngdarafls vegna brekku umbreytt í meiri hraða og þvískemmri tíma. Miðað við logn eða hliðarvind mun hvert kg gefa 7 sekúndur nálægt 70 kg og 9 sekúndur nálagt 120 kg. Þyngd er miðuð við hjólreiðamann með hjóli, en 120 kg maður munu þá hafa ca. sex og hálfa mínútu í forgjöfm.v. 70 kg (mann og hjól).
Um er að ræða tilraunakeppni með þessum þyngdarútreikningum og skulu þeir ekki teknir of hátíðlega. Vilji menn fræðast frekar um útreikninga skulu þeir hafa samband við Hauk Eggertsson,haukureg@strik.is
Öllum dylgjum um að innleiðing þyngdarflokka hafi eitthvað með það að gera að formenn hjólreiðarnefndar ÍSÍ annars vegar og Hjólamanna hins vegar kunni að vera yfir meðalþyngd hjólreiðamanna, verður umsvifalaust svarað með 3 árakeppnisbanni í keppnum á vegum hjólreiðanefndar ÍSÍ ásamt systurfélögum erlendis sem og Hjólamanna.