 |
 |
| Póstlisti: |
 |
 |
 |
 |
 |
 |
| Skráðu
þig hér til að fá tilkynningar um æfingar
og mót á vegum Hjólamanna, allir geta skráð
sig hér óháð hvort þeir séu
í Hjólamönnum eður ei. |
|
| |
 |
 |

|
 |
 |
 |
 |
|
 |
1. bikar í götuhjólreiðum |
þriðjudagur, maí 2 |
 |
 |
 |
 Fyrsta bikarmót sumarsins í götuhjólreiðum verður haldið við Sundahöfn sunnudaginn 7. maí klukkan 10:00. Keppnin verður með svokölluðu ,,kriterium? fyrirkomulagi, hjólað á stuttri braut sem á að vera lokuð fyrir umferð en verður það ekki að þessu sinni. Við munum reyna að fá bílstjóra til að keyra lengri leiðina þ.e. rangsælis ef þeir eru fáanlegir til þess en við vonum að ekki verði mikil umferð þarna á sunnudagsmorgni. Tími: Sunnudagur 7. maí klukkan 10:00 Staður: Sundahöfn;Vesturgarðar (rás og endamark) Héðinsgata - Klettagarðar ? Sundagarðar Mark: miðja Vesturgarða, við innkeyrsluna að heildversluninni Ásbjörn Ólafsson. Vegalengd: 40 km, hringurinn er 2 km og hjólaðir verða 20 hringir. Keppt er í eftirtöldum flokkum karla og kvenna: 16 ára og yngri 17-18 áraMeistaraflokki 30+ 40+ Flokkar 17-18 ára, 30+ og 40+ eru sérflokkar en taka einnig þátt í keppni meistaraflokks. Keppendur 30 ára og eldri eru saman í stigakeppni Hjólreiðanefndarinnar, þ.e. keppa innbyrðis til bikarmeistara. Keppnisgjald er 1000 krónur ef keppandi skráir sig fyrir 12:00 laugardaginn 6. maí, gjaldið er 1500 krónur ef greitt er á mótstað. Kennitala Hjólreiðafélags Reykjavíkur: 430194-2089Reikningsnúmer: 132-26-2089 (Landsbankinn í Smáralind)Vinsamlega sendið kvittun á hfr@vortex.is Keppandi telst hafa lokið keppni þegar fremsti maður hefur hringað hann, þ.e hann er orðinn hring á eftir fremsta manni. Þegar þetta kemur fyrir líkur keppandi þeim hring sem hann er hringaður á og skráður verður fjöldi hringja og tíminn sem hann náði. Við höfum þennan háttinn á þar sem allir flokkar keppa saman og eiga að hjóla 20 hringi ef þeir ná því áður en þeir eru hringaðir. Skráning keppenda og skoðun öryggisbúnaðar hjóla lýkur 30 mínútum fyrir keppni. Keppendur eru beiðnir að mæta tímanlega til leiks.
|
 |
 |

|
 |
 |
|
 |